Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 10. október 2008 06:00
Davíð Örn Atlason
Heimild: AP 
Óreyndur markvörður með Þjóðverjum gegn Rússum
Óreyndur markverður mun standa á milli stanganna hjá Þýskalandi gegn Rússlandi í undankeppni HM 2010 á morgun því Robert Henke, sem er aðalmarkvörður handarbrotnaði á æfingu.

Joachim Low, landsliðsþjálfari hefur þá tvo markverði eftir í hópnum og það eru þeir Rene Adler, leikmaður Bayer Leverkusen og Tim Wiese markvörður Werder Bremen. Hvorugur þessara markvarða hafa leikið landsleik.

En það eru góðar fréttir fyrir þýskaland að Roman Pavlyuchenko leikmaður Tottenham og lykilmaður í rússnenska landsliðinu getur ekki leikið leikinn vegna meiðsla á ökkla.

Enke mun einnig missa af leik Þjóðverja gegn Wales í Mönchengladbach á miðvikudaginn og gæti verið frá í mesta lagi þrjá mánuði.

Low hefur ekki gefið út hvaða markvörður verður tekinn í markið gegn rússum á morgun, en talið er líklegast að Adler taki stöðu hans.
Slapp
banner
banner
banner
banner