Heimild: Vefsíða UEFA
Það vakti mikla athygli í Evrópukeppni félagsliða kvenna í gærkvöld þegar rússneska lðið Zvezda-2005 lagði Evrópumeistara Frankfurt 1-0 en það var þó enn athyglisverðara að 41 árs gamall aðstoðarþjálfari rússneska liðsins skoraði sigurmarkið úr hornspyrnu.
Frankfurt eru ríkjandi Evrópumeistarar eftir að hafa lagt lið Umeå, sem burstaði Val í gær 5-1, í tveimur úrslitaleikjum í maí. Það áttu ekki margir von á að leikurinn í gær myndi valda þýska félaginu vandræðum en annað koma á daginn.
Hanna Kostraba, 41 árs gömul aðstoðarþjálfari Zvezda-2005 þurfti að koma beint inn í byrjunarliðið í milliriðlum Evrópukeppninnar vegna mikilla meiðsla innan herbúða liðsins.
Frankfurt hafði ekki tapað í síðustu 18 leikjum sínum í riðlakeppni Evrópukeppninnar en varð að játa sig sigrað vegna marks Kostraba beint úr hornspyrnu á 66. mínútu leiksins og sigur rússneska liðsins staðreynd. Þetta er fyrsta ár liðsins í Evrópukeppni.





