Heimild: Sky
Emile Heskey framherji enska landsliðsins segir að sektin sem króatíska knattspyrnusambandið fékk frá FIFA vegna kynþáttafordóma í leik liðanna í undankeppni HM 2010 í september vera ófullnægjandi.
FIFA sektaði króatíska sambandið um 15 þúsund pund vegna þess að Heskey varð fyrir kynþáttafordómum stuðningsmanna króatíska liðsins í Zagreb í september.
,,Hvað sektina varðar þá er þetta ákvörðun fólksins á toppnum," sagði Heskey. ,,Hver er tilfinning mín yfir sektinni? Allir vita að hún er ófullnægjandi en maður verður að láta þá sjá um þetta. Ef þú spyrðir hvað hvað ég hefði gert, þá hefði það verið öðruvísi hjá mér en þetta."
,,En það verður að virða þá þegar þeir taka svona ákvörðun og leyfa þeim að gera það. Ef þetta gerist aftur, þá verða þeir að gera eitthvað annað. Hvað framkomu stuðningsmannana varðar, þá var þetta svolítið skrítið, því þegar maður er að koma aftur í alþjóðlega boltann þá átti maður ekki alveg von á því."
,,Ef ég á að segja eins og er varð ég svolítið hissa á því, en þetta hætti eiginlega strax. Maður vissi að þetta var þarna, en lét þetta sem vind um eyru þjóta strax."





