Heimild: Setanta
Ensku úrvalsdeildarfélögin Arsenal og Manchester City eru á höttunum á eftir belgíska landsliðsframherjanum Moussa Dembele sem leikur fyrir AZ Alkmaar í Hollandi.
Dembele, sem er 21 árs gamall hefur verið umtalaður á allra vörum í Hollandi eftir að hann skoraði ótrúlegt mark gegn Willem II í úrvalsdeildinni.
Myndband af Dembele var ekki lengi að fara inná myndbandavefinn Youtube þar sem hann skorar þetta ótrúlega mark og fóru njósnarar frá Arsenal og Manchester City umsvifalaust til Hollands til að fylgjast með næsta leik AZ Alkmaar sem var þá gegn Sparta Rotterdam.
Dembele fékk þá boltann á miðsvæðinu og hljóp gjörsamlega í gegnum alla leikmenn sem voru í vegi fyrir honum og skoraði svo markið vinstra megin í teignum í hægra hornið og hefur það vakið einstaklega mikla athygli um alla Evrópu.
Hins vegar hefur Patrick Vervoort, umboðsmaður Dembele ítrekað það að hann hafi ekki heyrt frá hvorki Arsenal né Manchester City.
,,Ég heyri oft að svona stórlið séu að fylgjast með í áhorfendastúkunni, en ég veit ekki hvort þeir séu bara að fylgjast með Moussa(Dembele)," sagði Vervoort.
,,Það má vel vera að þeir hafi bara komið til að kíkja á Moussa. Staðreyndin er sú að markið hans gegn Willem hefur vakið ótrúlega mikla athygli," sagði hann að lokum.
Dembele hefur spilað 16 landsleiki fyrir Belgíu og skorað í þeim fjögur mörk og þykir meðal efnilegustu framherja landsins.
Þá stóð hans sig einnig frábærlega á Ólympíuleikunum í Kína í sumar með Belgíu þar sem hann skoraði þrjú mörk og þá tvö af þeim í 8-liða úrslitum gegn Ítalíu.
Smellið hér til að sjá ótrúlegt mark Dembele



