Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 10. október 2008 09:04
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sky 
Rooney ósáttur með að hafa ekki spilað 50 landsleiki
Wayne Rooney leikmaður Manchester United og enska landsliðsins er ósáttur með að hafa ekki spilað 50 landsleiki.

Rooney sem hóf ungur að spila með enska landsliðinu mun spila sinn 47 landsleik gegn Kazakhstan á laugardag.

Rooney er aðeins 22 ára gamall og er þetta því í raun frábært afrek en meiðsli og leikbönn hafa komið í veg fyrir það að hann hafi náð 50 landsleikjum.

,,Ég er svolítið ósáttur með þann fjölda landsleikja sem ég hef spilað," sagði Rooney.

,,Ég hef misst af leikjum vegna leikbanna og meiðsla, ef allt hefði farið vel ætti ég að vera kominn með 60 leiki."

,,Mér finnst að ég eigi að vera kominn með fleiri leiki,"
sagði Rooney sem hefur skorað í síðustu þremur leikjum fyrir Manchester United.
Slapp
banner