Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 10. október 2008 10:04
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sky 
Viduka gæti verið frá í sex mánuði til viðbótar
Joe Kinnear stjóri Newcastle hefur greint frá því að Mark Viduka leikmaður liðsins þurfi að líkindum að fara í aðra aðgerð en hann fer í myndatöku á hásin í heimalandi sínu.

Viduka hefur verið frá síðan í maí og þarf að fara í aðra aðgerð og gæti verið frá í sex mánuði.

,,Við vitum að það eru líkur á því að Viduka fari í aðgerð sem er ekki gott mál," sagði Kinnear.

,,Hann er búinn að fara í myndatöku en þarf að fara í aðra, hann fer til Ástralíu í aðra."

,,Við vitum meira þegar hann kemur til baka og því getum við aðeins beðið."

Slapp
banner
banner