Heimild: Sporting Life
Luka Modric segist vera að spila undir getu hjá Tottenham en hann gekk til liðs við félagið frá Dinamo Zagreb.
Honum efur ekki gengið sem best hjá félaginu eftir frábært Evrópumót að hans hálfu.
Hann hefur verið að glíma við meiðsli í hné og hann segir að hann þurfi að bæta leikinn sinn.
,,Ég er ekki sáttur við frammistöðuna mína hja Tottenham. Ég verð að gera betur og ég get gert betur," sagði Modric.
,,Vandamálið er að ég er með hnémeiðsli. Það er að valda gríðarlegum sársauka."
Modric er núna í undirbúning með króatíska landsliðinu fyrir leik liðsins gegn Úkraínu á morgun.




