Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 10. október 2008 13:01
Hafliði Breiðfjörð
Ásmundur Arnarsson framlengdi við Fjölni
Ásmundur þjálfari Fjölnir áfram.
Ásmundur þjálfari Fjölnir áfram.
Mynd: Fótbolti.net - Vilbogi M. Einarson
Ásmundur Arnarsson hefur framlengt samningi sínum um þjálfun Landsbankadeildarliðs Fjölnis til tveggja ára til viðbótar. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.

,,Það hefur gengið vel og mér hefur liðið vel svo það var áhugi af beggja hálfu að halda þessu samstarfi áðan," sagði Ásmundur í samtali við Fótbolta.net.

Fjölnir var nýliði í Landsbankadeildinni í sumar og endaði í sjötta sæti með 31 stig. Liðið komst einnig í úrslitaleik VISA-bikarsins annað árið í röð. Við spurðum Ásmund hvort gerðar yrði breytingar á leikmannahópi liðsins.

,,Það er erfitt að segja, fyrst og fremst reynum við að halda þeim hópi sem verið hefur," sagði hann að lokum.

Ásmundur hefur stýrt Fjölni síðan í nóvember 2004 og hefur því lokið fjórum leiktíðum með liðið. Tvisvar hefur hann komið þeim í úrslit bikarins og á síðasta ári vann liðið sér sæti í Landsbankadeildinni undir hana stjórn.
Slapp
banner
banner
banner