Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 10. október 2008 14:38
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: AP 
Chelsea krefst þess að fá 16 milljónir punda til baka frá Lyn
Chelsea hefur hafið dómsmál gegn norska félaginu Lyn og krefst þess að fá aftur þær 16 milljónir punda sem félagið greiddi fyrir nígeríska miðjumanninn Jon Obi Mikel. Lundúnarfélagið tók þessa ákvörun eftir að Morgan Andersen fyrrverandi framkvæmdastjóri Lyn var dæmdur fyrir svik í Noregi.

,,Það er nú ljóst að í kjölfar sakfellingar Andersen að félagaskiptin komu vegna villandi upplýsinga þess efnis að Mikel væri með samning við Lyn," sagði í yfirlýsingu frá Chelsea.

Mikel gekk í raðir Chelsea í júní 2006 en áður hafði Manchester United reynt að kaupa leikmanninn. Á þeim tíma sagði Mikel og lögmenn hans að samningur sem hafði verið gerður við United hafi verið falsaður og hann vildi fara til Chelsea.

Andersen fékk eins árs skilorðsbundinn fangelsisdóm í mars eftir að hafa verið fundinn sekur í Osló um að eiga við samning milli Lyn og Mikel svo hann gæti selt hann til Manchester United.
Slapp
banner