Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 10. október 2008 15:25
Magnús Már Einarsson
Eiður Smári: Íslendingar eru pínu villimenn inni á vellinum
Magnús Már Einarsson skrifar frá Rotterdam í Hollandi
Eiður Smári á æfingu í dag.
Eiður Smári á æfingu í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Eiður Smári Guðjohnsen leikmaður íslenska landsliðsins segir að allt þurfi að ganga upp til að hægt sé að ná góðum úrslitum gegn Hollendingum í undankeppni HM annað kvöld.

,,Við höfum allt til að bera til að ná góðum úrslitum sama hvert við förum. Auðvitað eru Hollendingarnir mun sigurstranglegri á pappírunum og fyrir leikinn," sagði Eiður á fréttamannafundi í dag.

,,Það þarf örugglega allt að ganga upp hjá okkur til að við náum góðum úrslitum. Það gæti allt gengið upp hjá okkur og það myndi samt enda á því að við myndum ekki vinna."

Íslendingar gerðu 2-2 jafntefli við Noreg í fyrsta leiknum í undankeppninni í síðsta mánuði en í kjölfarið fylgdi 2-1 tap gegn Skotum.

,,Við þurfum að halda áfram á þessari braut sem við vorum og ekki missa sjálfstraustið þó að við höfum tapað síðasta leik. Maður hefur fundið fyrir sterkari svekkelsistilfinningu eftir síðasta leik, eftir jákvæð úrslit í Noregi að geta ekki fylgt þeim eftir."

,,Fyrstu 25 mínúturnar í Skotaleiknum voru með þeim betri sem við höfum spilað í langan tíma. Við náðum ekki að skora mark á undan, þegar ég skaut yfir, hefði það farið inn og við náum forystu í svona leik þá held að við hefðum ekki gefið það eftir. Við fengum á okkur tvö ódýr mörk og endum á því að þurfa að vera í eltingarleik."


Íslenska liðið hefur fengið á sig nokkur mörk eftir föst leikatriði að undanförnu. ,,Það er alltaf auðvelt að segja, það þarf að loka á föstu leikatriðin, við þurfum að vera þéttir og síðan spila brasilíska bolta fram. Það er voða einfalt að sitja og tala um fótbolta," sagði Eiður.

,,Að eðlisfari eru Íslendingar pínu villimenn inni á vellinum og við erum með nokkra villimenn í liðinu. Við þurfum að vera aðeins hungraðari í að vinna bolta sem kemur fyrir markið. Auðvitað gera menn mistök og það þýðir ekkert að benda á einhvern einn, við gerum þessi mistök sem ein heild. Ef fótbolti væri án mistaka þá væri ekki gaman að fara á völlinn því að það yrði aldrei skorað."
Slapp
banner
banner