Magnús Már Einarsson skrifar frá Rotterdam í Hollandi
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari Íslendinga segir að Íslendingar þurfi að leggja aðaláherslu á varnarleikinn gegn Hollendingum í undankeppni HM á morgun. Ólafur hefur ekki tilkynnt byrjunarliðið en hann ætlar að halda áfram að spila 4-5-1.
,,Við þurfum að hugsa um að verjast vel. Stundum höfum við verið í vandræðum á síðasta vallarhelmingi og við erum að vinna í að finna lausnir á því en fyrst og fremst þurfum við að spila agaðan og sterkan varnarleik," sagði Ólafur Jóhannesson á fréttamannafundi í dag.
Íslendingar hafa leikið tvo leiki í undankeppni HM en Ólafur segist vera nokkuð ánægður með varnarleikinn til þessa.
,,Ég er ánægður með hann að því leyti til að við höfum ekki verið sundurspilaðir en við fáum á okkur mörk úr föstum leikatriðum sem ég er óánægður með og við eigum ekki að fá á okkur. Að öðru leyti hefur varnarleikurinn verið ágætur."
Ólafur býst við að Hollendingar muni pressa Íslendinga hátt á vellinum. ,,Ég tel það mjög líklegt. Þeir eru meira sóknarþenkjandi en varnarþenkjandi."
,,Sóknarfæri okkar liggja í því að þeir eru grimmir að sækja og gleyma sér kannski varnarlega og þar getum við átt möguleika. Bakverðrnir koma til með að sækja hátt upp á völlinn og skilja eftir stór svæði og við komum til með að spila aðeins inn á það," sagði Ólafur að lokum.
Efnahagsmálin hafa verið mikið í deiglunni á Íslandi undanfarna daga og þau málefni báru á góma á fréttamannafundinum í dag.
Hollenskir fjölmiðlar spurðu Ólaf hvort ástandið á Íslandi hafi áhrif á undirbúning íslenska liðsins fyrir leikinn á morgun.
,,Ég veit ekkert um peninga, ég á peninga og veit ekkert um þá," svaraði Ólafur hispurslaust.
,,Við hugsum ekki um peninga, við erum að reyna að hugsa um fótbolta en peninga. Einhverjir leikmenn gætu hugsað um þá en við erum að reyna að gleyma þeim."




