Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 10. október 2008 17:34
Magnús Már Einarsson
Pétur Péturs: Ætlum að vona að þeir byrji að baula mjög snemma
Magnús Már Einarsson skrifar frá Rotterdam í Hollandi
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Pétur Pétursson aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslendinga hefur verið mikið í fjölmiðlum í Hollandi fyrir landsleik þjóðanna sem fram fer á morgun.

Pétur lék lengi með Feyenoord í Hollandi við góðan orðstír en leikurinn á morgun fer einmitt fram á De Kuip, heimavelli Feyenoord.

,,Þeim finnst þetta æðislegt af því að þetta er minn gamli heimavöllur hjá Feyenoord og að ég sé að koma aftur hérna eftir 30 ár með íslenska landsliðinu að spila á móti hollenska landsliðinu," sagði Pétur sem hefur engu gleymt í hollenskunni.

,,Þetta hefur lítið breyst, ég tala hana ennþá reiprennandi. Maður kann öll slæmu örðin ennþá, ég hef ekki notað þau ennþá en kannski gerir maður það niður á velli."

Hollendingar eru með eitt sterkasta landslið í heimi og Íslendingar munu leggja upp með sterkan varnarleik.

,,Við komum til með að bakka til að byrja með en við þurfum líka að þora að spila fótbolta og þora að halda boltanum," sagði Pétur en áhuginn fyrir leiknum er mikill í Hollandi.

,,Það var búið að selja 30 þúsund miða á þriðjudaginn og það segir okkur að menn eru ánægðir með hollenska landsliðið og þá mæta þeir á leiki hjá þeim."

Hollenskir áhorfendur munu fjölmenna á leikinn en Pétur telur að þeir muni fljótt verða pirraðir ef illa gengur að brjóta Íslendinga á bak aftur.

,,Þeir eru kröfuharðir, þeir vilja mikið af mörkum og spila frábæran fótbolta á móti á okkur. Ef þeir gera það ekki snemma þá baula þeir á okkur, þeir hika ekki við það og láta í sér heyra ef þeir eru ósáttir. Það er mikil pressa á þeim að standa sig."

,,Það vinnur með okkur ef þeir byrja að baula á þá, við ætlum að vona að þeir byrji að baula mjög snemma, þá vitum við að við erum að gera eitthvað rétt,"
sagði Pétur að lokum við Fótbolta.net.
Slapp
banner
banner
banner