Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 10. október 2008 16:19
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Vefsíða KSÍ 
KSÍ lækkar miðaverð í forsölu gegn Makedóníu í 500-2000
Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Knattspyrnusamband Íslands ákvað í dag að lækka umtalsvert miðaverð á landsleik Íslands og Makedóníu sem fram fer á Laugardalsvelli næstkomandi miðvikudag kl. 18:00. Leikurinn er síðasti leikur Íslands á þessu ári í undankeppni HM.

Með þessu vonar Knattspyrnusambandið að sem flestir geti séð sér fært að koma á Laugardalsvöllinn til þess að styðja við bakið á íslenska landsliðinu.

Knattspyrnusambandið mun sjá til þess að þeir sem þegar hafa keypt miða á leikinn fái mismuninn endurgreiddan.

Forsala til og með 14. október
Sæti í rauðu svæði kr. 1.500
Sæti í bláu svæði kr. 1.000
Sæti i grænu svæði kr. 500

Miðaverð á leikdag 15. október
Sæti í rauðu svæði kr. 2.000
Sæti í bláu svæði kr. 1.500
Sæti i grænu svæði kr. 1.000

Börn 16 ára og yngri fá miðana með 50% afslætti.

Að kaupum loknum fær kaupandinn sendan e-miða (pdf skjal) í tölvupósti, sem hægt er að prenta út og nota sem aðgöngumiða á völlinn.

Miðasala á Ísland - Makedónía
Slapp
banner