Heimild: Sky
Ashley Young kantmaður Aston Villa hefur verði kjörinn besti leikmaðurinn í september mánuði í ensku úrvalsdeildinni.
Young átti mjög góða leiki með Aston Villa sem vann þrjá leiki í röð í deildinni og klifraði upp töfluna í deildinni.
Hann er 23 ára gamall leikmaður sem lagði upp opnunarmark Nigel Reo-Coker gegn Tottenham á White Hart Lane og skoraði svo annað markið í byrjun síðari hálfleiks.
Hann átti svo frábæran leik gegn WBA viku síðar og lagði upp mark John Carew í leiknum.
Hann lauk svo mánuðinu með því að skora beint úr aukaspyrnu í 2-1 sigri á Sunderland.
Young vann verðlaunin í apríl og er kominn í hóp með leikmönnnum eins og Cristiano Ronaldo, Wayne Rooney og Steven Gerrard sem hafa einnig unnið verðlaunin oftar en einu sinni.


