Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 10. október 2008 20:20
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sky 
Phil Brown stjóri september mánaðar í ensku úrvalsdeildinni
Phil Brown knattspyrnustjóri Hull hefur verið valinn stjóri september mánaðar í ensku úrvalsdeildinni.

Hull byrjaði mánuðinn á 2-1 sigri á Newcastle og gerði svo 2-2 jafntefli við Everton.

Svo kom liðið verulega á óvart með því að vinna Arsenal 2-1 á Emirates leikvangnum, eitthvað sem sumir telja ein óvæntustu úrslitin í sögu deildarinnar.

Hull hélt svo góðri byrjun áfram með 1-0 sigri á Tottenham á sunnudag og nú þegar komið er landsleikjahlé er liðið í þriðja sæti deildarinnar.

Flestir héldu að liðið myndi falla beint úr deildinni en allt annað er uppi á teningnum núna og því þótti við hæfi að verðlauna Brown fyrir árangurinn.

Þetta eru fyrstu svona verðlaunin sem fara til Hull sem er að leika í fyrsta sinn í ensku úrvalsdeildini.
Slapp
banner
banner
banner