Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 11. október 2008 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Kvennalið Vals mætir Bardolino frá Ítalíu í dag
Kvenaboltinn
Hallbera Guðný kemur inn í byrjunarlið Vals.
Hallbera Guðný kemur inn í byrjunarlið Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kvennalið Vals mætir ítalska liðinu Bardolino í milliriðlum Evrópukeppni félagsliða kvenna klukkan 10:00 í dag. Leikið er í Svíþjóð þar sem allur riðilinn fer fram þessa dagana. Valur tapaði 5-1 fyrir Umeå á fimmtudag og á þriðjudag mætir liðið Alma frá Kazakhstan.

Ein breyting er á liði Vals frá leiknum gegn Umeå. Hallbera Guðný Gísladóttir kemur inn í stað hinnar dönsku Sif Rykær.

Byrjunarlið Vals 4-5-1:

Guðbjörg Gunnarsdóttir, Sif Atladóttir, Ásta Árnadóttir, Málfríður Erna Sigurðardóttir, Vanja Stefanovic, Pála Marie Einarsdóttir, Katrín Jónsdóttir, Dóra María Lárusdóttir, Sophia Mundy, Margrét Lára Viðarsdóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir.
Slapp
banner
banner