Það hefur örugglega marga rokið í rogastans þegar þeir lásu í gær frétt þess efnis að varnarmaðurinn Höskuldur Eirkíksson hjá FH ætlaði ekki að gefa kost á sér í landsliðið í næstu tveimur leikjum. ÓIíklegt er að hann hafi verið í myndinni enda lék hann ekkert með FH síðasta mánuðinn vegna meiðsla.
En allt á sér ástæðu og nú er hægt að upplýsa um að fréttin var hluti af steggjun vina hans.
Margir vina Höskuldar eru þekktir knattspyrnumenn hér á landi, leikmenn eins og Grétar Sigfinnur Sigurðarson og Viktor Bjarki Arnarsson úr KR, og Steinþór Gíslason úr Val. Þeir héldu honum til heiðurs steggjaveislu í gær og henni tengd var þessi frétt.
Höskuldur er semsagt ekki að velta fyrir sér að hann gæti orðið valinn í landsliðið á þessari stundu og býst væntanlega ekki sérstaklega við því.
Sjá einnig:
Höskuldur Eiríksson gefur ekki kost á sér í landsliðið

