Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 11. október 2008 06:00
Hörður Snævar Jónsson
U21 árs landslið Englands lagði Wales og nálgast EM
Enska U21 árs landsliðið vann fyrri leik sinn við Wales í undankeppni EM en þetta var fyrri leikur liðanna um laust sæti í kepninni.

Simon Church kom Wales yfir áður en David Wheater og Adam Johnson leikmenn Middlesbrough skoruðu tvö mörk og komu Englendingum yfir.

Church jafnaði hinsvegar fyrir Wales áður en Gabriel Agbonlahor skoraði sigurmark leiksins og því leiðir enska liðið fyrir seinni leikinn.

Byrjunarlið Englands: Hart, Wheater, Mancienne, Taylor, O'Hara, Milner, Cattermole, Huddlestone, Johnson, Noble, Agbonlahor (Campbell 76).
Slapp
banner
banner
banner