Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   lau 11. október 2008 06:00
Hörður Snævar Jónsson
KÞÍ með magnaða þjálfaferð í Hollandi
Bryngeir Torfason sem er hér lengst (t.v) er einn þjálfara í ferðinni en þessi mynd var tekinn í ferðinni.
Bryngeir Torfason sem er hér lengst (t.v) er einn þjálfara í ferðinni en þessi mynd var tekinn í ferðinni.
Mynd: Kristján Bernburg
KÞÍ stendur fyrir magnaðri þjálfaraferð í tengslum við karlalandsleik Hollendinga gegn okkur Íslendingum í Rotterdam sem fer fram í dag.

26 þjálfarar fór á vegum KÞÍ og KSÍ á fimmtudag til Amsterdam og kynnast þar þjálfun hjá stórliðinu Ajax Amsterdam.

Í gær var síðan haldið til annars stórliðs Hollendinga, Feyenoord í Rotterdam. Var dvalið daglangt hjá félaginu og fylgst grannt með allri þjálfun hjá liðinu ásamt því að sjá leiki hjá yngri flokkum félagsins.

Í dag fer dagurinn fer í að fylgjast með leik hjá U17 ára unglingaliði Feyenoord gegn AZ Alkmaar og eftir hádegi fer fram hópavinna í umsjón KSÍ, en þeir UEFA A þjálfarar sem fara í ferðina nýta hana sem endurnýjun á skírteini sínu.

Rúsínan í pylsuendanum er síðan landsleikurinn Holland-Ísland á De Kuip heimavelli Feyenoord liðsins í kvöld.
Slapp
banner
banner
banner