Heimild: Soccerway
Morten Olsen landsliðsþjálfari Danmerkur verður án Jon Dahl Tomasson í leik liðsins gegn Möltu í undankeppni HM í dag. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í gær.
Tomasson er að glíma við erfið hnémeiðsli, sem að urðu til þess að hann gat ekki leikið með Feyenoord gegn Kalmar FF og NEC Nijmegen.
,,Ég er í góðu formi í rauninni á þessum tímapunkti, en það gerir þau (meiðslin) ekki betri og ég verð að gefast upp," sagði Tomasson.
Leikurinn gegn Möltu verður síðasti landsleikur Dana þar til í marsmánuði næstkomandi.



