Heimild: Sky
Rio Ferdinand, varafyrirliði Englands hlakkar mjög mikið til þess að bera fyrirliðabandið hjá landsliðinu á Wembley í fyrsta skipti.
Ferdinand leiðir liðið út á völlinn gegn Kazakhstan í dag en John Terry aðalfyrirliði er meiddur í bakinu.
,,Að vera fyrirliði í einhverjum leik er frábært, en að leiða England út á völlinn í fyrsta leiknum á Wembley í undankeppni HM er mjög sérstakt," sagði Ferdinand.
,,Ég hlakka mjög mikið til þess. Stærsta stundin við þetta verður að ganga út á völlinn. Þetta er frábær, nýr völlur og heimavöllur landsliðsins okkar."

