Heimild: Sky
Rúmenski framherjinn Adrian Mutu sem leikur með Fiorentina á Ítalíu segist ekki hugsa sér að borga háa sekt sem hann fékk frá FIFA.
Mutu, sem er 29 ára gamall hefur verið skipað að borga 17 milljónir evra til enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea í kjölfar þess að samningi hans var rift.
Chelsea riftu samning sínum við Mutu í október árið 2004 eftir að hann hafði fallið á lyfjaprófi og viðurkennt notkun á kókaíni á meðan hann spilaði fyrir klúbbinn.
Mutu fór hiklaust í 7 mánaða bann, en um leið og því var lokið samdi hann við ítalska stórliðið Juventus. Árið 2006 gekk hann svo til liðs við Fiorentina þar sem hann hefur blómstrað.
Hann hefur því greint frá því að þessi sekt muni ekki hafa áhrif á spilamennsku hans og að hann muni ekki koma til móts við knattspyrnusamband FIFA og borga skuldina.
,,Það sem hefur gerst fyrir mig er ekki rétt og ég muni berjast fyrir rétti mínum," sagði Mutu.
,,Það er mjög hugvekjandi að hafa stuðning samband rúmenskra knattspyrnumanna og samband atvinnumanna (FIFpro). Ég er ánægður með það að við erum allir að hugsa það sama," sagði Mutu að lokum.


