Heimild: Voetbal.nos.nl
Eiður Smári Guðjohnsen, Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, Pétur Pétursson, aðstoðarlandsliðsþjálfari og Grétar Rafn Steinsson sátu í gær fyrir svörum á fréttamannafundi í tilefni af landsleik Íslendinga og Hollendinga sem fer fram í undankeppni HM í kvöld.
Fótbolti.net hefur komist yfir myndbrot af fundinum þar sem margt forvitnilegt ber á góma.
Eiður Smári talar t.a.m. reiprennandi hollensku við heimamenn sem virðast hafa meiri áhuga á efnahagskrísunni hér á landi en landsleiknum. Ólafur lætur þá bíða eftir sér og tekur síðan skýrt fram að hann vilji frekar tala um fótbolta heldur en um peningamál.
Smellið hér til að sjá myndbandið






