Heimild: Sky
Bernd Storck, þjálfari landsliðs Kazakhstan varar enska landsliðið við því að hans lið hafi engu að tapa þegar liðin mætast á Wembley í undankeppni HM í dag og að þetta verði ekkert í líkingu við grínistann Borat.
Storck hefur gert miklar breytingar innan hópsins síðan hann tók við landsliðinu og vita leikmenn Englands lítið um leikmenn sem eru í Kazakhstanliðinu.
Hins vegar er Storck viss um að hans lið muni valda lærisveinum Fabio Capello miklum usla á Wembley í dag.
,,Það eru hundrað sæti á milli Kazakhstan og Englands á FIFA listanum þannig það vekur ekkert mikinn áhuga hjá Capello um mína leikmenn," sagði Storck.
,,Liðið hefur engu að tapa gegn stóru liði Englands og munum við sækja mikið á þá og voru harðir í horn að taka þegar við höfum tækifæri á því að sækja. Leikmennirnir verða að spila án ótta og þá getum við sýnt þeim hvað við getum."
,,Þetta er ekki veðmál, heldur er ég raunsær. Þetta eru mjög góðir leikmenn í mínu liði," sagði Storck enn fremur.
Storck varar þá Englendinga einnig við því að Kazakhstan sé ekki einhver grínþjóð eins og sýnir í Borat kvikmyndinni og að þeir ættu að taka þá alvarlega.
,,Kvikmyndin um Borat er algjört rugl því hún er ekkert í líkingu við Kazakhstan. Þetta er ekki karakter í líkingu við íbúa landsins. Við erum alvarleg þjóð sem á ekki að líkja við Borat myndina," sagði hann.
Þá segir hann leikmönnum sínum að bera ekki of mikla virðingu fyrir ensku leikmönnunum og hótar jafnvel því að leikmenn fái ekki að spila annan landsleik hlaupi þeir til Wayne Rooney og David Beckham til að biðja um treyju eftir leikinn.
,,Ef þeir skiptast á treyjum strax við Englendinga eftir leikinn þá mun það koma mér í uppnám," sagði hann.
,,Ég get alveg keypt handa þeim treyju sjálfur. Þetta er ekki mikilvægt og þeir geta skipst á þessu í undirgöngunum."
,,Þeir leikmenn sem fara til Rooney eða Beckham um leið og dómarinn flautar leikinn af munu aldrei spila aftur fyrir landsliðið," sagði hann að lokum.




