Heimild: Reuters
Raymond Domenech landsliðsþjálfari Frakka liggur undir mikilli gagnrýni þessa dagana en sjálfur segist hann ekkert óttast um framtíð sína í starfinu. Frakkar mæta Rúmeníu í undankeppni HM 2010 í dag og talið er að framtíð hans gæti ráðist á úrsiltum leiksins.
,,Það eina sem ég hef áhyggjur af er sú staðreynd að við verðum að komast á HM 2010," sagði Domenech við fréttamenn í gær.
,,Ég hef sagt það áður, og ég held áfram að segja það, það veltur ekki á einum leik hvort við komumst áfram, og því verða fleiri leikir eftir þennan."
Domenech hélt starfi sínu eftri EM 2008 þar sem liðið féll út í riðlakeppninni. Hann veit að hann verður að skila úrslitum úr leiknum í dag enda tapaði liðið fyrsta leiknum í undankeppni HM 2010 fyrir Austurríki, 3-1, en hann vann sér smá frið með 2-1 sigri á Serbíu.



