Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   lau 11. október 2008 10:03
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Reuters 
EM 2012 fer fram í Póllandi eftir samkomulag við FIFA
Allt bendir nú til þess að EM 2012 geti farið fram í Póllandi þar sem pólska ríkisstjórnin hefur náð samkomulagi við alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, um að stjórnandi sem hún réð yfir knattspyrnusambandi landsins verði látinn víkja og kosningar verði haldnar hjá sambandinu 30. október næstkomandi.

Með þessu kemst Pólland hjá öllum refsingum frá FIFA sem hefðu meðal annars orðið þær að lið frá landinu hefðu ekki fengið að taka þátt í leikjum á vegum FIFA og UEFA, þar með talin undankeppni HM 2010, auk þess sem nú er ekkert því til fyrirstöðu að Pólland haldi EM 2012 með Úkraínu eins og fyrirhugað hafði verið.

Pólska ríkisstjórnin hafði rekið alla stjórn knattspyrnusambandsins vegna spillingar en FIFA og UEFA líða ekki afskipti ríkisstjórna af knattspyrnustjórnum. Því var komist að samkomulagi um að fara þessa leið að kjósa að nýju.

FIFA og UEFA ætla hinsvegar að fylgjast vel með því sem gerist í Póllandi og nýrri knattspyrnustjórn til að koma í veg fyrir glæpastarfsemi í fótboltanum í landinu.

Slapp
banner