Heimild: AFP
Championship lið Charlton á Englandi gæti orðið nýjasta liðið sem fer í hendur útlendra eigenda eftir að fjárfestahópur frá Dubai lagði fram tilboð í félagið en það fékkst staðfest í gær.
Charlton er sem stendur í 14. sæti Championship deildarinnar eftir að hafa fallið úr úrvalsdeildinni árið 2007.
Það er Zabeel Investments sem hefur lagt fram tilboð í félagið en sami hópur var nýlega orðaður við Newcastle.
,,Stjórn Charlton Athletic staðfestir að hafa fengið peningatilboð frá Zabeel Investments sem er fjárfestingafyrirtæki frá Dubai," sagði í yfirlýsingu Charlton í gær.



