Heimild: mbl.is
Valur 2-3 Bardolino Verona
Kvennalið Vals er líklega úr leik í Evrópukeppni félagsliða kvenna þetta árið eftir að hafa tapað 2-3 fyrir Bardolino frá Verona á Ítalíu í dag.
Þetta var annar leikur Vals í riðlinum sem er leikinn í Svíþjóð. Áður hafði liðið tapað 5-1 fyrir heimastúlkum í Umeå á fimmtudag og eftir tvö töp er ljóst að liðið kemst ekki áfram í 8 liða úrslitin. Valur á þó eftir einn leik gegn Alma frá Khazakstan á þriðjudag.
Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði bæði mörk Vals í leiknum í dag og er þar með komin í ellefu mörk í Evrópukeppninni þetta árið. Hún skoraði einnig eina mark Vals í leiknum gegn Umeå og hefur því skorað öll mörk Vals í milliriðlinum.
Lið Bardolino komst í 2-0 áður en Margrét Lára minnkaði muninn. Ítalirnir komust svo í 3-1 áður en Margrét Lára minnkaði muninn að nýju, lokastaðan 2-3.
Bardolino hefur unnið báða leiki sína til þessa og er með sex stig og þar með komið áfram í átta liða úrslitin. Nú fer að hefjast leikur Umeå og Alma og ef stórlið Umeå fær stig þar er endanlega ljóst að Valur er fallið úr leik.



