Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   lau 11. október 2008 12:27
Hörður Snævar Jónsson
Holland Ísland: Grétar Rafn ekki með í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Grétar Rafn Steinsson leikmaður íslenska landsliðsins verður ekki með gegn Hollandi í kvöld ytra. Þetta kom fram í hádegisfréttum Stöðvar 2.

Grétar meiddist á lokamínútum æfingu liðsins í gær og verður ekki með sökum þess.

Þá verður Heiðar Helguson ekki með en hann er einnig meiddur og eru líkur taldar á að Veigar Páll Gunnarsson muni taka hans stöðu.

Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin kl. 18:15 en leikurinn hefst klukkan 18:45.

Þessar þjóðir hafa mæst 10 sinnum til þessa og hafa Hollendingar haft töluverða yfirburði í þessum viðureignum. Átta sinnum hafa Hollendingar farið með sigur af hólmi en tvisvar hefur niðurstaðan verið jafntefli
Slapp
banner
banner