Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 11. október 2008 14:06
Hörður Snævar Jónsson
U19 gerði jafntefli við Svía í fyrsta leiknum
Björn Bergmann skoraði tvö mörk.
Björn Bergmann skoraði tvö mörk.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
U19 ára landslið Íslands hóf leik í dag í undankeppni EM en leikið var gegn Svíum í Makedóníu þar sem riðillinn fer fram.

Mikið fjör var í leiknum og var lokastaðan 3-3 en Björn Bergmann Sigurðarson skoraði tvö mörk fyrir Íslands og þá skoraði Jóhann Berg Guðmundsson eitt mark úr víti.

Á mánudaginn verður leikið gegn Austurríki og heimamenn í Madedóníu verða mótherjarnir í síðustu umferðinni á fimmtudaginn.

Tvær efstu þjóðirnar tryggja sér sæti í milliriðlum ásamt þeim tveimur liðum í þriðja sæti er hafa bestan árangur í riðlunum þrettán.
Slapp
banner