Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   lau 11. október 2008 17:00
Magnús Már Einarsson
Götuspjall: Íslendingar vonast eftir dramatískum sigri
Magnús Már Einarsson skrifar frá Rotterdam í Hollandi
Búast má við að þónokkuð af Íslendingum verði á leiknum gegn Hollendingum í Rotterdam klukkan 18:45 í kvöld.

Fótbolti.net hitti nokkra stuðningsmenn Íslendinga í dag og þeir eru margir hverjir bjartsýnir og búast við dramatískum sigri á meðan að aðrir búast við tapi.

Fyrr í dag hitti Fótbolti.net hollenska stuðningsmenn að máli og þeir eru á því að þeirra menn eigi eftir að sigra örugglega í kvöld. Við skulum hins vegar kíkja á það hvað íslensku stuðningsmennirnir sögðu.


Stefán Þór Sigurbjörnsson: Leikurinn fer 1-0 fyrir Íslandi og við skorum í uppbótartíma eftir fyrirgjöf. Ég held að Hemmi (Hermann Hreiðarsson) skori með skalla.


Viðar Örn Viðarsson: Ég held að þetta fari 3-0 fyrir Hollandi. Þeir eru of stór munnbiti held ég fyrir íslenska landsliðið. Það verður 3-0 í hálfleik og þetta endar þannig.


Atli Már: Við tökum þetta 2-1. Við lendum undir, Hollendingar skora á fyrstu tuttugu mínútunum en síðan skorum við tvö mörk á síðustu fimm mínútunum. Hemmi skorar með skalla og síðan kemur Eiður og skorar sigurmarkið.


Rúnar Gissuararson: Þetta fer 4-1 fyrir Hollendinga. Þeir liggja í sókn allan tímann og Eiður Smári setur eitt þegar að þeir eru komnir fram.


Guðmundur Fannar Sigurbjörnsson: Leikurinn fer 1-0 fyrir Ísland og Heiðar Helguson skorar sigurmarkið á 89.mínútu.
Slapp
banner
banner