Heimild: De Telegraaf
Hollenskir fjölmiðlar virðast hafa meiri áhuga á fjármálakreppunni á Íslandi heldur en landsleiknum sem fer fram milli þjóðanna í undankeppni HM í kvöld.
Dagblaðið De Telegraaf fór meira að segja á stúfanna og athugaði hvort Íslendingar væru borgunarmenn fyrir gistingu á hótelinu sem landsliðið hefur dvalið á síðustu daga.
Til allrar hamingju segir í blaðinu, var búið að greiða fyrir gistingu og uppihald áður en landið varð gjaldþrota.
Þó að ástandið sé slæmt í efnahagsmálum okkar Íslendinga er það full fast að orði kveðið hjá hollenskum fjölmiðlum að fullyrða að landið sé gjaldþrota.


