Indriði Sigurðsson og Ragnar Sigurðsson eru bakverðir íslenska liðsins í dag. Hér eru þeir að skoða völlinn fyrir leik.
Hollendingar fóru með 2-0 sigur af hólmi í viðureigninni við Íslendinga í undankeppni HM 2010 í kvöld en leikið var á De Kuip leikvangnum í Rotterdam.
Joris Mathijsen kom Hollendingum yfir eftir stundarfjórðungs leik og Klaas Jan Huntelaar bætti öðru marki við á 65. mínútu.
Frekari umfjöllun um leikinn kemur hér á Fótbolta.net síðar í kvöld en leikurinn var í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net og hér að neðan má sjá það sem þar fór fram.
Holland 2-0 Ísland:
1-0 Joris Mathijsen ('15)
2-0 Klaas Jan Huntelaar ('65)
20:40: Leiknum er lokið.
20:33: Skipting
Arnór Smárason kemur inná í stað Veigars Páls Gunnarssonar á 87. mínútu. Síðasta skipting Íslands.
20:28: Skipting
Gríðarlegur fögnuður er á leikvangnum þegar Wesley Sneijder kemur inná fyrir Rafael van der Vaart á 82. mínútu.
20:19: Skipting
Á 74. mínútu kemur Aron Einar Gunnarsson inná fyrir Brynjar Björn Gunnarsson.
20:14:
Eiður Smári Guðjohnsen átti þrumuskot beint úr aukaspyrnu í hliðarnetið utanvert. Skömmu áður hafði Afellay komið inná fyrir Ryan Babel í hollenska liðinu.
20:11: MARK!
Rafael van der Vaart handleikur boltann og sendir inn á Klaas Jan Huntelaar sem skorara og kemur Hollandi í 2-0 án þess að dómarinn taki eftir hendinni.
20:10: Rúmur klukkutími er liðinn af leiknum. Meira líf er að komast í íslenska liðið.
20:07: Skipting hjá Íslandi
Theodór Elmar Bjarnason kemur inná í stað Ragnars Sigurðssonar. Þá fer Birkir Már Sævarsson í bakvarðarstöðuna í stað Ragnars og Theodór á kantinn.
19:57:
Arnór Smárason og Theodór Elmar Bjarnason eru farnir að hita upp.
19:53:
Edwin van der Sar náði ekki að halda skoti Veigars Páls Gunnarssonar og í kjölfarið komst Eiður Smári í gott skotfæri en skot hans misheppnað.
19:51: Síðari hálfleikur er hafinn.
19:35: Búið er að flauta til hálfleiks. Hollendingar leiða með einu marki gegn engu.
19:32: Klaas Jan Huntelaar skallar rétt framhjá marki Íslendinga á 44. mínútu.
19:31:
Gunnleifur Gunnleifsson ver vel skot Ryan Babel sem hann blakaði yfir markið.
19:28:
Emil Hallfreðsson komst í gott skotfæri þar sem Eiður Smári var dauðafrír í teignum fyrir opnu marki en Emil skaut hátt yfir markið.
19:23:
Yfirburðir Hollendinga eru miklir í kvöld en íslensku varnarmennirnir eru duglegir að fórna sér til að verjast sóknum þeirra. Hollendingar hafa fengið sex hornspyrnur en við enga.
19:15:
Kristján Örn Sigurðsson hefur staðið sig vel í vörn Íslands og bjargaði af marklínu eftir sendingu Ryan Babel fyrir markið.
19:03: MARK!
Joris Mathijsen kemur Hollandi yfir með því að renna sér framfyrir Kristján Örn og setja boltann í netið eftir sendingu frá vinstri kanti.
19:03: Skipting hjá Hollandi
Demy de Zeeuw kemur inn fyrri Nigel de Jong sem var meiddur.
19:00 Ekkert markvert hefur gerst fyrsta tólf mínúturnar. Dirk Kuyt hafði átt skot hátt yfir markið en engin hætta virtist vera.
18:48: Leikurinn er hafinn. Íslendingar byrja með boltann.
18:41: Liðin ganga inn á völlinn. Nú verða þjóðsöngvar þjóðanna leiknir og í kjölfarið hefst leikurinn.
17:47: Byrjunarlið Hollands er klárt.
Wesley Snejder byrjar leikinn á bekknum hjá Hollendingum en hann hefur verið að ná sér eftir meiðsli. Byrjunarliðið er samt gríðarsterkt en það er svona:
Holland: Van der Sar, Dirk Marc Elis, Andre Ojer, Joris Mathijsen, Giovanni Van Bronchurst, Mark Van Bommel, Dirk Kuyt, Nigel De Jong, Klaas Jan Huntelaar, Rafael van der Vaart, Ryan Babel.
Varamenn: Wesley Snejder, Jan Kromkamp, Tim de Cler, Orlando Engelaar, Demy de Zeeuw, Henk Timmer, Ibrahim Afellay.
17:45: Klukkutími í leik
Þegar klukkutími er í leik eru áhorfendur farnir að týnast á völlinn. Þeir eru undantekningarlaust klæddir í appelsínugult frá toppi til táar og búast má við góðri stemninguna á De Kuip. Leikvangurinn tekur 51.577 áhorfendur og má búast við því að það verði uppselt eða allt að því.
17:45: Boltastrákarnir fá sína athygli
Athygli vekur að í leikskrá Hollendinga fyrir leikinn er mynd og nafn allra boltastrákanna í leiknum og einnig hægt að sjá hvar hver þeirra stendur. Til gamans má sjá hér í myndunum hægra megin af þessari síðu í leikskránni.
17:45: Byrjunarlið Íslands
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari Íslands tilkynnti byrjunarlið Íslands klukkan 15:00 í dag. Grétar Rafn Steinsson og Heiðar Helguson eru meiddir og þeirra í stað koma Ragnar Sigurðsson og Veigar Páll Gunnarsson. Gunnleifur Gunnleifsson er í markinu.
Byrjunarliðið (4-5-1):
Gunnleifur Gunnleifsson - Ragnar Sigurðsson, Hermann Hreiðarsson, Kristján Örn Sigurðsson, Indriði Sigurðsson - Birkir Már Sævarsson, Brynjar Björn Gunnarsson, Stefán Gíslason, Eiður Smári Guðjohnsen - Emil Hallfreðsson - Veigar Páll Gunnarsson.




