Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 11. október 2008 21:55
Magnús Már Einarsson
Arnór Smárason: Sár og svekktur með að tapa leiknum
Magnús Már Einarsson skrifar frá Rotterdam í Hollandi
Arnór í leiknum í kvöld.
Arnór í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
,,Ég er sár og svekktur með að tapa leiknum. Við fórum að sjálfsögðu í hann til að vinna en Hollendingar voru betri í dag. Þeir eru á meðal bestu þjóða í heimi og þeir vita alveg hvað þeir eru að gera, þeir kunna að spila fótbolta" sagði Arnór Smárason eftir 2-0 tap Íslendinga gegn Hollendingum í undankeppni HM í kvöld.

Íslenska liðið náði ágætum spilköflum á köflum og hefði getað náð inn marki í leiknum.

,,Við vorum að skapa okkur góð færi sem á góðum degi hefðu getað farið inn. Við höfum lagt upp með á æfingum að halda boltanum meira og reyna að spila fótbolta og það hjálpar okkur."

Arnór leikur með Heerenveen í Hollandi og hann býst við stríðni þegar hann mætir næst á æfingu.

,,Það eru allaf einhver skot á mann, maður var að vonast eftir betri úrslitum en maður lætur bara lítið fyrir sér fara í nokkra daga," sagði Arnór sem telur Íslendinga geta náð góðum úrslitum gegn Makedóníu á miðvikudag.

,,Núna er að gíra sig upp fyrir Makedónana og byrja að hugsa almennilega um þann leik því þar eru góðir möguleikar," sagði Arnór að lokum.
Slapp
banner