Magnús Már Einarsson skrifar frá Rotterdam í Hollandi
Klaas Jan Huntelaar framherji hollenska landsliðsins var ánægður með 2-0 sigur Hollendinga á Íslendingum í undankeppni HM í kvöld en hann var hins vegar ekki ánægður með spilamennsku liðsins.
,,Þetta var erfiður leikur. Við spiluðum ekki mjög vel en við náðum að skora og vinna sem var aðalmarkmið okkar," sagði Huntelaar við Fótbolta.net eftir leikinn í kvöld.
Huntelaar skoraði sjálfur annað mark Hollendinga en hann hefði viljað sjá fleiri mörk í kvöld.
,,Við verðum að skora fleiri mörk og vanda síðustu sendinguna betur en eilt yfir var þetta góður sigur, við fengum þrjú stig og núna verðum við að einbeita okkur að Norðmönnu," sagði Huntelaar að lokum.



