Magnús Már Einarsson skrifar frá Rotterdam í Hollandi
Grétar Rafn Steinsson gat ekki leikið með íslenska landsliðinu gegn Hollendingum í undankeppni HM í kvöld vegna meiðsla sem hann varð fyrir á æfingu í gær. Grétar er meiddur á hné en býst við að vera klár í slaginn fyrir leikinn gegn Makedóníu á miðvikudaginn.
,,Ég kem heim með liðinu og síðan er undir lækni liðsins hvað verður en ég reikna að vera með. Ég fer líklega í myndatöku á mánudag til að athuga hvort allt sé í góðu lagi. Þetta er í hægra hnénu en ef ég þekki mig rétt þá held ég að þetta verði nú í lagi," sagði Grétar við Fótbolta.net í kvöld.
,,Það var leiðinlegt að missa af þessum leik en svona gerist. Þetta er hluti af fótboltanum en það er leiðinlegt að þetta gerist svona rétt fyrir leik."
Hollendingar lögðu Íslendinga 2-0 en þrátt fyrir það fengu Íslendingar einnig nokkur færi til að skora.
,,Það voru kaflar þar sem við hefðum mátt fara aðeins framar á þá en heilt yfir var þetta mjög fínn leikur. Við fáum sex færi í leiknum og hefðum átt að nýta eitthvað af þeim. Að fá sex færi á móti Hollandi í Hollandi er nokkuð gott og ég held að leikmenn geti verið ánægðir með sinn leik en aftur á móti hljóta menn að vera svekktir að hafa ekki nýtt færin sín."
Á miðvikudaginn koma Makedónar í heimsókn á Laugardalsvöllinn og Grétar vonast eftir góðum stuðningi þar.
,,Við verðum að taka þetta góða úr leiknum. Það eru hagstæð úrslit fyrir okkur í riðlinum og þetta verður stórleikur á móti Makedóníu. Ég vona innilega að fólk fjölmenni á leikinn, við fáum Tólfuna og stuðningsmenn til að koma. Fáum fólk til að gleyma aðeins hvað er að gerast á Íslandi, horfum á fótboltaleik og skemmtum okkur. Leikmenn eru þétt stilltir og ætla sér að gera góða hluti í framhaldinu. Núna þurfum við bara fólk með okkur," sagði Grétar við Fótbolta.net.



