Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   lau 11. október 2008 22:16
Hafliði Breiðfjörð
Gunnleifur: Ef það var einhvern tíma séns þá var það núna
Magnús Már Einarsson skrifar frá Rotterdam í Hollandi
Gunnleifur fyrir leikinn í kvöld en við hlið hans er Birkir Már Sævarsson.  Þess má til gamans geta að Gunnleifur og Birkir Már eru náskyldir en þeir voru að spila sinn fyrsta leik saman í dag.
Gunnleifur fyrir leikinn í kvöld en við hlið hans er Birkir Már Sævarsson. Þess má til gamans geta að Gunnleifur og Birkir Már eru náskyldir en þeir voru að spila sinn fyrsta leik saman í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Gunnleifur Gunnleifsson markvörður íslenska landsliðsins sagði eftir 2-0 tap liðsins gegn Hollandi í Rotterdam í kvöld að ef það hefur einhvern tíma verið séns á að ná úrslitum gegn hollenska liðinu þá hafi það verið í kvöld.

,,Ef það var einhvern tíma séns á að ná úrslitum gegn Hollandi í Hollandi þá var það í dag. Mér fannst Holland ekki vera svakalega áhugasamir um þetta," sagði Gunnleifur í viðtali vði Fótbolta.net eftir leikinn.

,,Mér fannst við vera svolítið taugaveiklaðir í byrjun og smá tíma að koma okkur inn í leikinn. En þegar við þorðum að fara framar á völlinn gekk okkur vel. Við vorum að fá ágætis færi þarna en hefðum mátt vera gráðugari í að fara ofar með liðið og setja smá pressu á þá aftast því þeim leið ekkert of vel að fá okkur í sig. Varnarleikurinn fannst mér mjög góður. Kristján og Hermann voru frábærir og stýrðu þessu vel. Það var líka ágætisvinnsla á þessu öllu."

,,Við ætluðum að reyna að halda markinu hreinu fyrsta korterið eða 20 mínúturnar en það tókst ekki. Svo þegar þeir setja seinna markið á okkur þá færum við okkur aðeins ofar og prófum þá svolítið. Við hefðum mátt vera aðeins aggresívari þegar við komum upp við markið."

Leikurinn fór fram á rúmlega 50 þúsund manna velli Feyenoord í Rotterdam. Gunnleifur hefur ekki spilað með landsliðinu síðan 2001 og er vanir að spila fyrir um 1000 áhorfendur hér heima. Hvernig var þá að spila þarna núna?

,,Þetta var ólýsanlegt, það var stórkostleg upplifun að spila á þessum velli á móti þessu liði með íslenska landsliðinu. Ég á aldrei eftir að gleyma þessu," sagði Gunnleifur að lokum.

Slapp
banner
banner