Magnús Már Einarsson skrifar frá Rotterdam í Hollandi
,,Við vorum að spila fínan leik en engu að síður þá er maður aldrei ánægður með að tapa," sagði Stefán Gíslason miðjumaður íslenska landsliðsins við Fótbolta.net eftir leikinn gegn Hollendingum í kvöld.
,,Við getum borið höfuðið hátt, við vorum að skapa færi, við sátum djúpt og Hollendingarnir voru ekki að sundirspila okkur."
Hollendingar voru meira með boltann í leiknum en Íslendingar fengu aftur á móti sín tækifæri.
,,Þeir voru mikið með boltann og voru mikið að rúlla honum fyrir framan okkur. Það var það sem við lögðum upp með og ætluðum að leyfa þeim."
,,Í fyrri hálfleik hefðum við mátt koma aðeins hærra upp og reyna að pressa þá annað slagið. Allt í allt þá vorum við að gera fullt af fínum hlutum en þetta er ekki létt að spila á móti Hollandi úti."
Næsti leikur Íslendinga í undankeppni HM er á miðvikudagskvöld en þá koma Makedónar í heimsókn á Laugardalsvöllinn.
,,Það er klárt markmið hjá okkur að taka þrjú stig heima á móti Makedónum," sagði Stefán að lokum við Fótbolta.net.


