Heimild: Reuters
Fabio Capello landsliðsþjálfari Englands var ekki par sáttur með stuðningsmenn liðsins þegar að liðið lagði Kazakhstan, 5-1 í undankeppni HM 2010 í gærdag.
Ashley cole átti klár sök á marki Kazakhstan og eftir það púuðu stuðningsmenn Englands á hann.
Englendingar unnu 5-1 eins og áður sagði, Wayne Rooney skoraði tvö mörk, Rio Ferdinand eitt, Jermain Defoe eitt og síðan gerðu Kazakhstan eitt sjálfsmark.
,,Ég skil ekki af hverju lýðurinn púaði á Ashley Cole gerði mistök," sagði Capello á blaðamannafundi.
,,Það er alltaf mögulegt fyrir leikmenn að gera mistök og á þessum tímapunkti er mikilvægt að áhorfendaskarinn hjálpi honum, en púi ekki á hann."


