Heimild: Sky
Wayne Rooney skoraði tvö mörk þegar að Englendingar lögðu Kazakhstan 5-1 í undankeppni HM 2010 í gær. Hann var að sjálfsögðu ánægður með bæði mörkin og sigurinn sjálfan.
,,Ég var mjög ánægður með þessi tvö mörk og augljóslega hæstánægður með að vinna," sagði Rooney.
,,Í hálfleik tókum við þá ákvörðun að við ætluðum að vera þolinmóðir og vera ekkert stressaðir. Það skilaði sér, við áttum fín færi og nýttum þau."
,,Það er alltaf einhver vafi áður en þú nærð fyrsta markinu. En þegar við náðum að skora fyrsta markið vissum við að við myndum vinna leikinn."
,,Við vorum vonsviknir með markið sem við fengum á okkur og við vildum skora fleiri mörk."

