Heimild: Sky
Alexander Hleb leikmaður Barcelona vill fá Cesc Fabregas, fyrrum liðsfélaga sinn hjá Arsenal til félagsins.
Cesc lék með unglingafélagi Barcelona fyrir nokkrum árum síðan og lýsti því yfir í vikunni að það yrði draumur að leika aftur með félaginu.
,,Okkur semur mjög vel saman innan sem utan vallar. Fyrir mér er hann eins og bróðir. Við hringjum í hvorn annan oft til þess að tala um ýmsa hluti," sagði Hleb.
,,Hann segist sakna mín hjá Arsenal og það yrði frábært ef að hann kæmi til Barca."
,,Ég hætti ekki að segja honum að hann ætti að koma aftur til Barca og hann hættir ekki að segja mér að hann sé mjög ánægður hjá Arsenal og með Arsene Wenger."
,,Ég mun ekki hætta að ónáða hann þar til hann breytir um skoðun. Ef hann hlustar á mig í lokin þá yrði það frábært fyrir Barcelona.




