Heimild: AP
Allt bendir til þess að Hollendingurinn Ruud Gullit sé að snúa að nýju til AC Milan þar sem hann sló í gegn á tíunda áratug síðustu aldar en nú sem ráðgjafi.
Gullit sem er orðinn 46 ára gamall og lagði skóna á hilluna fyrir margt löngu síðan fundaði með starfsmönnum AC Milan í Mílanó á föstudag og mun verða ráðgjafi liðsins í norður Evrópu samkvæmt Gazzetta dello Sport.
Gullit hafði átt frábæran tíma hjá AC Milan á árunum 1987 til 1994. Með liðinu vann hann ítölsku deildina þrisvar og Evrópubikarinn tvisvar.
Hann skoraði í 4-0 sigri AC Milan á Steaua Búkarest í úrslitaleik Evrópubikarsins árið 1989.
Hann var liðsfélagi Carlo Ancelotti sem í dag er þjálfari liðsins.
Gullit sagði af sér sem þjálfari Los Angeles Galaxy í Bandaríkjunum í ágúst. Hann hefur einnig stýrt liðum Chelsea, Newcastle og Feyenoord.





