Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 12. október 2008 10:19
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Reuters 
Stuðningsmenn Senegal trylltust eftir fall úr HM 2010
Reiðir stuðningsmenn landsliðs Senegal trylltust eftir að liðið féll úr keppni á HM 2010 í gærkvöld og réðust á höfuðsstöðvar knattspyrnusambands landsins þar sem þeir brutu rúður en 1-1 jafntefli gegn Gambíu þýddi að útilokað er að liðið vinni sér sæti á HM 2010.

Jafnteflið varð líka til þess að liðið vinnur sér ekki sæti á Afríkumótinu og það gerði stuðningsmennina mjög reiða. Þeir settu upp brennandi vegatálma í kringum leikvanginn og lentu í slagsmálum við óeirðarlögreglu sem beitti táragasi og kylfum á þá. Að minnsta kosti einn slasaðist.

Senegal endaði í þriðja sæti í sjötta riðli í annarri umferð Afríkuhluta undankeppninnar og kemst því ekki í þriðju umferð. Óeirðarseggirnir grýttu steinum í byggingu knattspyrnusambandsins og rústuðu einnig rútu fyrir utan leikvanginn.

Senegal hafði komist í lokakeppni HM 2002 en eftir að hafa komist yfir gegn Gambíu í gær endaði leiknum með jafntefli eftir jöfnunarmark fimm mínútum fyrir leikslok. Stuðningsmenn rifu niður auglýsingaskilti og hentu steinum og flöskum og í raun öllu lauslegu inn á völlinn. Svartur reykur steig til himins eftir að þeir kveiktu í.

Slapp
banner