Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 12. október 2008 11:06
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: AFP 
Kuranyi rekinn úr þýska landsliðinu fyrir að láta sig hverfa
Joachim Löw landliðsþjálfari Þýskalands sagði í morgun að hann muni ekki velja framherjann Kevin Kuranyi í landsliðshóp sinn að nýju eftir að leikmaðurinn lét sig hverfa eftir 2-1 sigur liðsins gegn Rússum í gær.

Kuranyi sem er framherji Schalke 04 hafði ekki verði í 18 manna hópi Þýskalands í leiknum og horfði því á úr stúkunni. Hann lét sig svo hverfa í miðjum leik og mætti ekki í liðsrútuna sem fór til Dusseldorf eftir leikinn og svaraði ekki í síma.

,,Ég get ekki sætt mig við svona framkomu eins og Kevin hefur sýnt af sér, og því mun ég ekki aftur velja hann í landsliðið í framtíðinni," sagði Löw í yfirlýsingu á vefsíðu þýska knattspyrnusambandsins.

Eins og við greindum frá í morgun var leitað að Kuranyi í um klukkustund á leikvangnum áður en ákveðið var að fara af stað frá Dortmund til Dusseldorf þar sem rútan fór af stað. Þýskaland mætir Wales á miðvikudag í Mönchengladbach í undankeppni HM 2010.

Sjá einnig:
Kevin Kuranyi lét sig hverfa í gær og finnst ekki

Slapp
banner
banner
banner