Þann 18 október n.k. fer fram firmamót í knattspyrnu á gervigrasvelli ÍR. Leikið verður í fjórum fjögurra liða riðlum.
Spilaðir verða tveir riðlar fyrri part dags eða frá 10.00-13.00 og tveir riðlar frá 13.00-16.00. Úrslit fara síðan fram eftir að leikjum líkur kl. 16.00. Efstu liðin í riðlunum spila til úrslita, þannig að það er einnig spilað um þriðja sætið. Áætlað er að mótið sé búið um kl. 17.00.
- Leiktími er 2x12 mín.
- Fjöldi leikmanna: 10 í liði að hámarki og 7 inná í einu
- Spilað verður á hálfum keppnisvelli og eru frjálsar innáskiptingar
Þátttökugjald fyrir lið er 20.000 kr.
Sigurlið fær vegleg verðlaun sem eru frá Olís
Léttar veitingar verða í boði ÍR og Olís meðan leikir fara fram.
Eftir mót verður boðið uppá girllveislu fyrir alla keppendur.
Valdimar Guðmundsson tekur við skráningum í síma: 863-0660
Netfang: [email protected].
Greiða þarf þátttökugjaldið fyrir 16. okt. inná reikning: 115-26-40399
Kennitala: 560284-0399
Endilega senda skýringu með greiðslu þ.e. “firmamót.



