Heimild: Setanta
Bernd Schuster þjálfari Real Madrid hefur ekki enn gefist upp á að næla í Cristiano Ronaldo leikmann Manchester United og segist nú ætla að gera allt til að ná að kaupa leikmanninn á næsta ári.
Real Madrid eyddi mestum hluta sumarsins í að reyna að kaupa þennan portúgalska landsliðsmann frá Manchester United en án árangurs. Þetta pirraði Sir Alex Ferugson stjóra Manchester United sem gagnrýndi spænska félagið í fjölmiðlum.
Þrátt fyrir að hafa lýst yfir áhuga á að fara til Real Madrid í sumar fékk Ronaldo svo góðar mótttökur er hann sneri aftur í lið Man Utd eftir að hafa byrjað tímabilið í meiðslum en sagan er ekki á enda.
,,Það er von um að á næsta ári gæti hann verið með okkur," sagði Schuster cið Marca.
,,Við verðum að gera allt sem við mögulega getum því það er þess virði að fá þennan fótboltamann. Madríd veit það og var tilbúið að greiða vel fyrir það á þessu ári."
,,Kannski verður það aðeins lægra á þessu ári, en ég tel að við verðum að vera tilbúnir undir það ef við þurfum að fara í þessi útgjöld."



