Heimild: AP
Petr Cech markvörður tékkneska landsliðsins og Chelsea er meiddur á læri og líklegt að hann missi af leik Tékka gegn Slóveníu í undankeppni HM 2010 á miðvikudagskvöld.
Hann hafði hlotið meiðslin í 2-1 tapi liðsins gegn Póllandi í undankeppninni í gær en leikið var í Wroclaw í Póllandi.
,,Það er ekki nægur tími fram að næsta leik svo hann verði 100% heill," sagði Petr Krejci læknir tékkneska liðsins í yfirlýsingu á vefsíðu tékkneska sambandsins.
Þetta bætist ofan á það að Tomas Rosicky lykilmaður liðsins var þegar frá keppni vegna langtíma meiðsla.
Tékkar mæta Slóveníu í Teplica á miðvikudag en leikinn verða þeir að finna enda bara komnir með eitt stig úr fyrstu tveimur leikjum sínum í undankeppninni. Pólland og Slóvenía eru á toppi riðilsins með sjö stig úr þremur leikjum.




