Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 12. október 2008 15:46
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: AP 
Enska sambandið rannsakar hagræðingu úrslita leikja
Enska knattspyrnusambandið mun vera að hefja rannsókn á því hvort úrslitum leikja í næst efstu deild þar í landi hafi verið hagrætt. Sambandið mun hafa fengið upplýsingar um óvenjuleg veðmál á leik í Championship deildinni nú nýlega.

Það er Sunday Telegrahp dagblaðið sem hefur verið að vinna í málinu og afhenti enska knattspyrnusambandinu skjöl þar sem sýnt er fram á óvenjuleg veðmál í hálfleik á leik sem ekki er gefið upp hver er.

,,Við munum skoða öll sönnunargögn sem við fáum í hendur," sagði enska knattspyrnusambandið. ,,Við erum ákveðnir í að rannsaka vel allar slíkar ásakanir."

Skjalið mun einnig hafa verið sent til veðmálastofnunar á Englandi sem er stofnun sem heldur úti reglum fyrir veðmál á Bretlandi.

Hvorki enska sambandið né stofnunin hefur lögsögu í Asíu, en bæði sjá um að passa upp á heiðarleika í leiknum.

Slapp
banner
banner
banner