Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 12. október 2008 16:47
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Vefsíða KSÍ 
Jafntefli gegn Aserum hjá U17 kvenna
Keppni í riðli Íslands lauk í dag
Kvenaboltinn
Kristrún Lilja Daðadóttir þjálfari liðsins.
Kristrún Lilja Daðadóttir þjálfari liðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stelpurnar í U17 kvenna léku lokaleik sinn í dag í undankeppni EM hjá U17 kvenna en leikið var á Ítalíu. Mótherjarnir voru frá Aserbaídsjan og urðu úrslitin markalaust jafntefli.

Liðið lék þrjá hörkuleiki í riðlinum en gekk illa fyrir framan mark andstæðingana því ekki tókst að koma boltanum í markið.

Þetta var einnig sagan í leiknum í dag gegn Aserum en íslenska liðið var sterkari aðilinn án þess að ná að sýna fram á það á markatöflunni.

Liðið fékk aðeins á sig 2 mörk í riðlinum en það dugði einungis til eins stigs þar sem markaskónir urðu eftir heima. Liðið lék engu að síður vel á köflum en það dugði ekki til þess að komast áfram.

Frakkar sigruðu í riðlinum með því að leggja Ítala að velli í dag með fjórum mörkum gegn engu.
Slapp
banner
banner