Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 12. október 2008 18:36
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Setana 
David James hefur ekki plön um að hætta með landsliðinu
David James markvörður Portsmouth og enska landsliðsins segist ekki hafa nein plön um að hætta með enska landsliðinu og að hann ætli sér á HM 2010.

,,Ég vona að ferð minni sé ekki lokið," sagði James eftir landsleik Englands við Kazakhstan í gær.

,,Það er mikið af fólki sem hættir of snemma, ég vil ekki hætta fyrr en ég upplifi drauma mína."

,,Margir segja að ég hafi átt að hætta fyrir nokkrum árum en ég vissi alltaf að ég gæti gert gagn."

,,Ef ég geri gagn fyrir England er ég mjög, mjög ánægður,"
sagði James að lokum.
Slapp
banner